Heimavinnsla og sala afurða

Á Hvanneyri, föstudaginn 30. apríl 2004

 

Ráðstefna á vegum Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, í samvinnu við Landbúnaðarráðuneytið, Félag ferðaþjónustubænda og Bændasamtaka Íslands.

 

Markmið ráðstefnunnar

·        Að greina mögulega markaði fyrir heimavinnslu búsafurða og sölu á þeim.

·        Að efla umræðu um Íslenska matarhefð og viðhald hennar.

·        Að hvetja til fjölbreyttara vöruúrvals og gæðavöru (Gourmet-vörur)

·        Að hvetja til frekari fræðslu- og námskeiðahalds um heimavinnslu afurða.

·        Að kynna lög og þær reglur sem gilda um matvælavinnslu og sölu hérlendis.

·        Að hvetja til frekari samþættingar laga og reglna er við kemur heimavinnslu afurða.

 

Dagskrá

Fundarstjóri: Bjarni Guðmundsson, Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri

 

Kl. 12:30 Skráning

Kl. 12:50 Setning, Hákon Sigurgrímsson, Landbúnaðaráðuneytinu.

Kl. 13:00 Marteinn Njálsson, formaður Félags ferðaþjónustubænda

Kl. 13:20 Ola Kr. Rusaanes - Norsk Gårdsmat

Problemer, utfordringer og muligheter i småskala matproduksjon, sett fra bondens synsvinkel. (Flutt á ensku)

Niðurstöður könnunar sem hann kynnti einnig.

Kl. 14:00 Åse Marie Rusaanes Landbruks pluss, Landbruksdepartmentet

Prosjektet Landbruk pluss (Flutt á norsku)

Kl. 14:30 Kjell A. AustadMattilsynet

Ny tilsynsmodell for mindre matbedrifter (Flutt á ensku)

Kl. 15:10 Árni Jósteinsson, Bændasamtök Íslands – Viðhorf samtakanna.

Kl. 15:30 Veitingar í boði ,,Lifandi landbúnaðar

 kynnir Ólöf Þ. Hallgrímsdóttir bóndi Hraunbergi Mývatnssveit.

Kl. 16:00 Elín Guðmundsdóttir Matvælasvið, Umhverfisstofnunar – Lög og reglur

Kl. 16:20 Sigurður Örn Hansson  - YfirdýralæknisembættiðLög og reglur

Kl. 16:40 Laufey Haraldsdóttir – Ferðamálabraut Hólaskóla. Þekking og möguleikar

Kl. 17:00 Hannes Hafsteinsson – Matra. Vannýttar auðlindir

Kl. 17:20 Umræður

Kl. 18:00 Ráðstefnuslit

_______________________________________

__________________________________

Út er komin bókin, Vöruþróun - frá hugmynd að árangri. Höfundur hennar er Karl Friðriksson og er bókin gefin út af Iðntæknistofnun. Nánari upplýsingar eru á vefsvæðinu www.iti.is/voruthroun

 

Ýmsir áhugaverðir fræðslubæklingar hafa verið gefnir út af Fiskistofu, Umhverfisstofnun og Yfirdýralækni er tengjast þessum málum, m.a. Með allt á hreinu - um hreinlæti við matvælavinnslu, Almennt innra eftirlit - leiðbeiningar um innleiðingu innra eftirlits í matvælafyrirtækjum, Merkingar matvæla, o.fl. Kynnið ykkur málið - flestir bæklinganna eiga bæði við stór og smá matvælafyrirtæki!

 

Hjá Bændasamtökunum eru til lítil hefti sem heita annars vegar Hlunnindi jarða og hins vegar Hugmyndaskrá landbúnaðarins. Þessi smárit gefa hugmyndir að ýmsum atvinnutækifærum til sveita. Hjá atvinnuráðgjafa Bændasamtakanna Árna Jósteinssyni er einnig til lítið hefti er heitir - Heimasala og heimavinnsla, fjármögnun viðskiptahugmynda.

 

Hjá Landbúnaðarháskólanum er til smáhefti um Sauðamjólk - hægt er að fá frekari upplýsingar um það hjá Sveini Hallgrímssyni.

 

Vefsíður

http://www.matnett.com

http://www.slowfood.com/

http://www.spisgodt.no/