Amerískar pönnukökur að hætti Hákonar Más        Af www.ruv.is - 27.07.2004

 

- fljótlegt að gera meira ef klárast -

 

1 og 1/2 bolli af lífrænu spelt hveiti

1/2 bolli af lífrænu bóghveiti

kúpt teskeið af vínsteinsdufti (í stað lyftidufts)

2 bollar af lífrænni mjólk

1 vistvænt egg

2 msk jómfrú olífuolía

salt og krydd að smekk

smávegis af ungum hvannasprotum sem teknir eru að vori, graslaukur eða súra

meðlæti steikt söl

 

Þurru efnin eru sigtuð saman, síðan bætt við mjólk, eggi og olíu og öllu hrært vel saman. Reyndar segir í "Let's cook it right" (Eldum það rétt) að ekki eigi að hræra oftar en fimmtíu hringi! Í lokin er hvönn eða öðru grænu bætt saman við. Steikt á pönnu með smjöri eða ólífuolíu.

 

Þegar á borð er borið er ómissandi er að setja smá smjör á heita pönsuna, örlítið af sterku sinnepi og hlynsýróp. Í stað beikons eru söl steikt í smjöri og olíu þar til þau verða stökk.